Jæja það er kannski best að hripa nokkrar línur hérna, reyndar
er sumarið ekki mikill blogg-tími, nema kannski fyrir fólk sem
neyðist til að setjast fyrir framan tölvuna á hverjum degi.
Alla vegana þá kom ég norður aftur á föstudagskvöldið eftir langa
og stranga daga í borginni. Merkilegt hvað stressfactorinn
þýtur alltaf upp þegar maður kemur í borgina. Annars náði ég
að gera allt sem ég ætlaði að gera í Reykjavíkinni og það meira að
segja á tilsettum tíma. Stundum ganga hlutirnir bara upp.
Nú á leiðinni norður var ég hér um bil keyrð niður af
brjálæðingi á RISA STÓRUM jeppa. Mætti honum á minni akgrein
á gígantískri ferð - í blindbeygju. Sem betur fer var ég á
eðlilegum hraða og náði að nauðhemla og jeppabrjálæðingurinn náði
að troða sér inn í bílaröðina sem kom á móti. Hann uppskar
langt flaut, fingurinn og manndrápsaugnaráð en því miður hugsa ég
að það hafi ekki haft mikil áhrif á viðkomandi. Kaldhæðnin
var sú að akkúrat á þessum tíma var ég að hlusta á, í útvarpinu,
umfjöllun um aukningu á slysum af völdum glæfraaksturs.
Mér nú svo sem nokk sama hvort þessir hálfvitar drepa sjálfan sig
eða ekki. En því miður þá ná þeir oft að taka aðra með sér í
leiðinni
Heima á Svertingsstöðum var heyskapur í fullum gangi um helgina
og svo hófust fastir liðir eins og venjulega á mánudaginn.
Sem sagt lífð ákaflega dægilegt þessa dagana sem og reyndar flesta
aðra daga. Fór meira að segja á hestbak í gærkveldi og tók á
móti þrílembingum því sauðburður er víst ekki alveg búin á
Svertingsstöðum en það er of löng saga til að segja hér.
Svo þetta er pistill dagsins. Fremur leiðinlegur og
ákaflega lítið málefnalegur en svolítið update á því hvað er að
gerast